Einveran heillar mig :)
28.07.2006 10:38:09 / Inga

Nýtt blogg...

Jæja ég má ekki vera minni en hinir og ákvað að prófa nýja bloggsvæðið, ef kalla má nýtt.... bloggar.is

Endilega kíkið á það og segið mér hvað má laga og bæta :)

www.ingaj.bloggar.is

Inga kveður héðan!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 09:37:13 / Inga

Take it easy... :)

Jæja lífð mitt er alveg á fullu núna... margar pælingar snúast í marga marga hringi í hausnum mínum þessa dagana... t.d. hvað á ég að gera um Versló?? Nei Inga Lára og Didda ég ætla ekki til eyja... sorry, nema þið bjóðið??? ;) Pínu spennt fyrir Akureyri, ætlar einhver??

En annars voða lítið að frétta.. vann mikið afrek um helgina!! Fór ekki í bæinn!! :) hehe ætlaði á laugardag en vegna þess að ég er pínu hrakfallabálkur þá var ég bara heima... :( Meiddist pínu í leik fyrr um daginn svo ég var bara heima :( en aldrei að vita hvað gerist næstu helgi :)

Svo auðvitað stórfrétt: ÉG FÉKK SKOÐUN Á RAUÐU BEYGLUNA!!! Því lík hamingja á mínum bæ, því ég mátti loksins þrífa bílinn og bónaði hann auðvitað :) En ég sagði við sjálfa mig, no cleaning day until the car gets 07!!!! Shit hvað ég er sleip í enskunni :)

Hvað get ég sagt meira... sorry ég beilaði um helgina... :D Ollý og Ásta enn í útlandinu, Birna að fara líka... ég skilin alein eftir :( Óska eftir nýjum og betri vinum sem skilja mig ekki eftir á góðum sumardögum :) Nema auðvitað þær komi með pakka, þá fyrirgef ég allt sona :haha: Annars styttist í endann á sumrinu!! 8| Maður trúir því varla!!! Styttist í skólann, og þá auðvitað LONDON BABY!! :)

Jæja farin að halda áfram að vinna...
Inga sem var skilin eftir!! (engin leiðindi all the people in da house!!)


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:51:03 / Inga

Hverjir eru að skoða síðuna mína?

Jæja ég sé að það eru 56 búnir að skoða síðuna mína í dag?? Hver ertu ?? Komment takk! :)
En já enn ein helgin búin, var hún ekki ólík hinum helgunum... Kíkti aðeins út með stelpunum á föstudag. Það var players og Papar!! Þeir klikka ekki!!! :) En kvöldið byrjaði með fótbolta stelpunum og endaði með Birnu, Hrafnhildi og Fríðu :) Takk fyrir mig stelpur! Frábært kvöld! En já á laugardag þegar ég vaknaði var hressleikinn í fyrirrúmi, fór beint í klippingu og í klippingunni leið mér ekki svo vel :s skil ekki af hverju ;) fór beint heim og lagði mig fyrir kvöldið :D Já auðvitað voru það báðir dagarnir hjá Ingu Jónu!! 8) Sunnudagurinn var tekinn í leti!! Skil ekki af hverju samt, fór í sund og allt :):haha: Vona ég hafi svæft neinn í sundi, held ég hafi lyktað afar illa þó Birna hafi neitað því :)
En jæja ný vinnuvika, nýjir tímar 8) Stefnan tekin á æfingar og róleg heit þessa vikuna, vinna upp glataðan leti tíma! :haha: Vill einhver hjálpa mér og vera með í því??
Og já, fullt af myndum sem mig langar að sjá í bíó!! Superman, Break up, Pirates of Caribean og fleiri... Óska eftir bíóvinum hér með!! :)
En jæja ég er hætt í bili, letin búin að taka völdin :)
Inga

» 18 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 15:16:10 / Inga

Óskast!

Ég óska eftir vinum sem vilja fara með á Papana á morgun á Players! Ef þig langar ekki þangað þá er Sálin á Nasa sama kvöld?? Anyone?? Birna og Hrafnhildur að plata mig út ;) Athuga hvort einhverjir fleiri eru game?? ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 23:34:18 / Inga

Ja hérna...

já hvað haldi þið! Föstudagskvöld og ég róleg heima!!! já þetta getur gerst ;) en já lítið búið ða gerast í vikunni nema ég fór í Vatnaskóg í gær að heimsækja hana Svandísi með Sigrúnu :) Alltaf gaman ða kíkja í skóginn! En ég hafði ekki farið þangað í nokkur ár held ég!! 8| Ég sem var nánast fastagestur þarna! En svona breytast hlutir, núna er ég bara alls staðar annars staðar ;)
En já svo var líka leikur í boltanum á miðvikudag, unnum 4-1. Loksins erum við komnar í gírinn og farnar að vinna leiki :evil: En síðast unnum við í bikarleik, Fylki og komumst því í 8 liða úrslit og lentum á móti Fjölni, tel okkur vera heppnar þar! :) En já... nóg um þetta bull mitt ;)
Svo er planið á morgun að njóta þess aðvera í rvk á laugardag, og vakna HRESS OG KÁT :haha: Það hefur ekki gerst síðustu 2 helgar 8) En annað kvöld er svo vinnudjamm... Hljómar vel og finnst mér líklegt að ég kíki þangað svo endilega bjallið í mig ef þið ætlið að gera eitthvað og hugsið ykkur um að hitta mann í bænum ;)
Nóg um bull á föstudagskvöldi...
P.s. ég fór meira segja út að hlaupa með Odd áðan! Já á föstudagskvöldi eftir klukkan TÍU!! Ég er mjög stolt!:) enda liggjum við dauð hérna núna ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 17:37:42 / Inga

Landsmót og aftur landsmót! :)

Vá landsmót hestamanna var síðustu helgi! 3 skiptið sem ég fer og ALLTAF stendur það undir væntingum! :) En helgin byrjaði ekki vel, stelpurnar fóru á undan, Pétur búinn að tjalda vagninum og nei ég komst ekki fyrr en 7 af stað! úff stefndi í langa langa ferð með mömmu og pabba... EN NEI! Dóttir vinafólks mömmu og pabba fékk far og vorum við í gúúúúdííí fíling ALLA leiðina með mjólkurdrykk í hönd! :) Vá hvað það var gaman! Síðan ætlaði ég ekki að fara að borga 2000 kr fyrir 30 mín svo égbeið við hliðið eftir því að klukkan var 11 ! En vá það var bara gaman að spjalla við gæslu kallana, þeir voru mínir bestu vinir, en stelpurnar komu líka og fengu einhvern til að skutla dótinu mínu upp að tjaldvagni :) sönn þjónusta á sona móti ! :haha: Loksins varð klukkan 11 og ég komst inn og byrjaði að tjalda kúlutjaldinu, allt tókst á mettíma ogvar skellt sér beint í fjörið :)
Todmobile voru að spila fyrsta kvöldið og var það bara gaman! Hitti fullt af fólki og var ótrúlegasta fólk þarna get ég sagt ykkur! Seinna kvöldið voru svo engir aðrir en PAPARNIR, já Hrafnhildur þú misstir af þeima! en þeir voru snillingar eins og alltaf og stemmingin var mögnuð! En ég ætla ekkert að vera deila miklu um þetta, stelpurnar hafa séð um að blogga, en ég veit að stelpurnar Didda og Inga lára hafa bloggað um þetta svo spurning um ða lesa það bara ;) Ég nenni ekki að skrifa líka um þetta :) En gæti það svo sem alveg :) Bara biðja þá um það.... ;)
En ég fór einnig með foreldrunum heim eftir þessa helgi, og viti menn! hún var löng!! Endalaus umferð og þynnkan alveg að gera sig! :( En við komumst á endanum heim heil og höldnu :)
Núna er spurning hvernig restin á sumrinu verður, ég hef ekki planað meira í bili, en endilega komið með hugmyndir, ég er alltaf til í að gera eitthvað :)
En núna er ég komin með flugu í hausinn, langar að lita hárið mitt!!! Hjálp! hvernig??

» 13 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 18:44:05 / Inga

Sumarið er tíminn!

 Já sumarið er aðeins farið að láta sjá sig! Ég fékk að sjá það fyrir norðan síðustu helgi þar sem sólin skein og hitastigið var 15+!!! :) Lengi lifi SKAGAFJÖRÐUR!!:) En já ég hef verið að vinna á leikskóla síðan ég var búin í skólanum en núna er ég komin í vinnu hjá símanum ;) Allt eftir plani sumarsins, en vinnan hjá símanum byrjaði ALLT ANNAÐ EN VEL!! Ég er  búin að vera veik og gat varla hreyft mig fyrir magaverkjum í gær:( Já ég hafði greinilega náð mér í einhverja flensu áður en ég hætti hjá leikskólanum... En er vonandi að verða hress:) Um síðustu helgi var þetta æðislega reunion! Vá hvað það var gaman að sjá fólkið! Við vorum nokkur sem mættum eldhress á föstudagskvöldið á barinn og héldum sona PRE-REUNION! og tók fólk misvel á því það kvöld og fóru sumir fyrr en heim en aðrir *ég* sé samt ekki eftir því! :haha: Var svo mæting hress og kát kl 12!! Daginn eftir! :) Mishress og á misjöfnum tíma mætti fólkið, en það var fámennt en góðmennt! En já ég sá mynd af mér síðan í grunnskóla! SHIT! Hvernig gátu foreldrar mínir látið sjá mig sona til fara? ég var með klippingu eins og einhver hefði látið skál á hausinn og klippt meðfram! En jæja... nóg um það... fötin voru æði hjá fólki á myndunum ;) Síðan lá leiðin á eitthvað fótboltamót sem einhverjir fengu æði fyrir *ég* hahahhahaha vorum misvel búin, engin í fótboltafötum en það reddaðist enda var mjólkurdrykkur við hönd (litlu börnin lesa því er þetta ritskoðað!!! :) en við slógum heldur betur í gegn! ENGINN hafði trú á okkar liði þar sem við vorum að SMALA í 7 manna lið sona 2 mín fyrir fyrsta leik :D og viti menn ég var sett í framlínuna o gsetti tvö kvikindi! Heldur betur sem markamaskínan fór í gang! Eftir þetta mót, þar sem við lentum í 4.sæti af 8.liðum var haldið í ratleik, en vegna þreytu var ákveðið að fara í hann keyrandi 8) Voru hinar ýmsu þrautir gerðar um ALLT Hofsós sem er mjög stórt fyrir þá sem ekki þekkja :) og var þetta frábært! t.d. var hestabak(hetjur fóru berbak), kokosbolluát, finna og steikja EGG, sippa og fleira og fleira! síðan um kvöldið var haldið partý og mætti fólk seint, betra er seint en aldrei ;) og var gítar og stemmarinn mjög góður! Síðan héldum við eldhress á ballið og hittum við þar enn fleira fólk sem er frá besta staðnum HOFSÓS!! :) En fólk var samt ekkert að þekkja mig! Hvað er málið? mér finnst ég vera ALVEG eins! En næst skal ég mæta með nafnspjald og ættarsögu á blaði 8| En jæja takk fyrir mig allir! :)
úff langt blogg! en ég varð að segja ykkur frá þessu:)
Svo er það næsta helgi! Fyrsta helgin í júlí og hvert ætla ég annað en á LANDSMÓT HESTANNA! úff ég hlakka svo mikið til! Tjaldvagninn er víst mættur, eina sem vantar er hressa fólkið sem verður í honum :) hehe Svo ef þú ert maður með mönnum þá mætir þú á landsmót næstu helgi !!! :haha:
En jæja ég held ég sé hætt í bili... Ef þú vilt hitta mig, þá bara panta tíma !! hehe
Yfir og út! :P

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 00:22:45 / Inga

Kröfur og aftur kröfur...

Jæja hrafnhildur farin að væla.... þá skal ég blogga... en samt hef lítið að segja.. Var að koma frá Ísafirði.. Flaug þangað til að spila einn leik og aftur til baka! Shit lítil flugvél og ég pínu hrædd... En við unnum leikinn og það skiptir mestu  :haha: En annars lítið aðfrétta...
Fór í sumarbústaðaferð um helgina og vá hvað það var gaman! Kynntist nýju fólki í næsta bústað og það var æði! :) Og auðvitað vera vel tekið á því með nýju vinnunum og sona :) og já ég vil bara deila því með öllum sem hafa séð mig daginn eftir djamm! Ég vaknaði HRESS!! Án djóks! Báða dagana! Ég er ENN ekki að trúa því og bíð eftir því ða "veikindin" komi 8| En er reyndar raddlaus og sona, en hvað gerir maður ekki fyrir fólkið :) En ég ætla ekkert aðvera segja frá þessari ferð, þið bara verðið að hringja í mig og fá details :)
Næst á dagskrá er svo 17.júní! Vúhú! Veit samt EKKERT hvað ég geri nema ég ætla ekki að fara úr bænum! Hef farið 2 síðustu helgar úr bænum og fer næstu 2 helgar eftir þessa! Já það er nefnilega ríjúníon á Hofsósi á jónsmessu! Hér er heimasíðan fyrir það ef ykkur langar að skoða: www.skagafjordur.net/reunion endilega kíkið! :) Svo helgina eftir það, fyrsta helgin í júlí þá ætla ég að skella mér á landsmót hestamanna með stelpunum :) Allir aðfara þangað! Það er ógeðslega gaman! Hef farið í 2 síðustu skipti og ætla aftur núna!
Jæja held þetta sé komið nóg og ég eigi ða fara ða sofa... :P
Þið megið kommenta núna og segja mér hvernig ykkar plan er ;)

» 12 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 20:38:30 / Inga

Komment...

Jæja ég hef ekki nennt að skrifa því það kommentar enginn og því held ég því fram að enginn skoði þetta:)
En jæja hvað er málið með þessar kosningar?? Getur fólk ekki leyft manni að ákveða sig sjálfur!!! Hringja í fólk í tíma og ótíma!! :evil: Meina allt í lagi að hafa auglýsingar og auglýsa sín málefni og sollis, en KOMMON! HRINGJA OFT!!! Úff en já það er eins gott að þið kjósið og netið rétt ykkar! Þetta fæ ég að heyra oft á mínu heimili :)
Það er samt margt að gerast núna... Ásta Marteins varð stór í gær(ekki á hæð samt 8)) og bauð í mat :) Við vinkonurnar mættum auðvitað hressar og var mikið talað... Sem auðvitað er ekki hægt að birta hér! :haha: Svo á morgun er aðal! Sigrún vinkona er að fara að GIFTA sig!! Já GIFTA ! Ég trúi því varla :) En hún er líka komin alveg 6 mánuði á leið og er algjör dúlla :) Ég er viss um að nokkur tárin eiga eftir að renna niður á morgun...:cry: Ég hlakka bara mikið til :)
Hmm ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur mikið meira... jújú ég fór með bílinn minn í skoðun, og núna neitar Ollý að fara með mér í bíl því ég keyri um með GRÆNAN aha miða á bílnum :evil: Það virkaði ekki á þennan bumbukall sem skoðaði bílinn að vera aumingja lítil stelpa.. Fer ekki þangað aftur! :) En annars verður þetta litla sem var að lagað og þá getur Ollý átt sig og öllum öðrum er boðið upp í bílinn minn :haha:
Heyrðu ég er að gleyma aðal málinu! Ég er byrjuð að vinna, já það er ekki hægt að sofa út lengur því maður er svo þreyttur! Eða skrópa bara vegna þreytu! Nei núna bara harkan sex! Farin aðvinna á leikskóla í einn mánuð og fer svo að vinna hjá símanum! Endalaust gaman bara enn sem komið er :D Fullt af dúllum í kringum mig allan daginn sem eru með hor og kvefuð ;) Samt alveg jafn miklar dúllur :)
Úff ég nenni ekki meiru...
P.s. ekki kommenta.... ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 23:50:02 / Inga

Engin afsökun...

Jæja núna er ég búin í prófum, kláraði reyndar á föstudaginn siðasta og ég hef enga afsökun til að blogga EKKI nema bara leti og meiri leti... :) en núna er fríið mitt eftir prófin búið, byrja bara aðvinna á morgun!!! 8| Ég held að prófin hafi gengið ágætlega, eða vona það :) og svo núna framundan hjá mér er bara mikið !! Vinna, æfa, keppa því jú íslandsmótið er aðbyrja!!! 8) svo er júró á næstunni, ætla norður á Hvítasunnunni, sumarbústaður með stelpunum, hestamót og ég veit ekki hvað!! Bara ALLT að gerast hjá mér :) svo ef þig langar að sjá mig, er best að hringja tímanlega og panta tíma ;)
En já, þessi helgi er búin að vera ágæt, próflokaskemmtun með bekknum síðasta föstudag þar sem fólk drakk mismikið :$ og auðvitað endað í bænum!:) Mjög gaman og þar hitti ég fullt af fólki :) svo á laugardag fór ég með Svandísi og fleiri stelpum í pottapartý og svo partý eftir það :) og í bæinn! Þar hitti ég ENGA AÐRA en hana ELFU RUT!! ég hélt ég myndi missa andlitið af UNDRUN! :haha: Alltaf gaman að sjá fólk sem maður sér ALDREI !! já ég játa, ég er löt að fara og hitta fólk...
Samt skil ég ekki, það er stundum sona að maður á alltaf að hringja í fólk en það hringir aldrei í mann á móti, og röflar svo að maður hringi ekki :( Meina ef þig langar að heyra í manneskju, þá tekur þú upp tólið og hringir ;) en jæja nóg um þetta :) held ég ætti að fara að undirbúa góðan nætursvefn, sona áður en ég þarf að fara að skeina og sníta 8| En jæja þið þekkið mig, ég veit ekki hver þú ert nema kvitta... þar sem það stendur ekki nafnið með hverju númeri sem kemur á síðuna:) Svo endilega kommentaðu svo ég viti að þú viljir fylgjast með mér þó þú hringir ekki alltaf eða ég hringi ekki alltaf í þig :)
Híhí kannski pínu væmið þarna í lokin!:) En látið mig vita hvernig næsta helgi er, júróhelgin sjálf!
Yfir og út!

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 00:31:46 / Inga

ótrúlegustu hlutir gerast á ferðinni...

Já maður getur lent í ótrúlegum hlutum þegar maður er að keyra... T.d. getur löggan stoppað mann því HENNI finnst maður vera keyra og hratt... Einhver með aulabrandara í næsta bíl og ég veit ekki hvað :) Ég hef lent í nokkru skrítnu og það sem gerðist síðasta þriðjudag er bara fyndið! En málið er það að ég var að keyra til Reykjavíkur og var að verða komin á Selfoss:) ég er auðvitað að keyra á hámarkshraða og í góðu gír að syngja með :) Lendi á eftir bíl sem sýnir mér puttann og var voða fyndinn :) Nema hann keyrði HÆGT! Svo ég tek framúr og er með aulabrandara á móti og síni puttann út um topplúguna! En nei viti menn! Það sem gerðist næst er bara fyndið! Ég sá bílinn koma og taka framúr mér og átti von á að fá puttann frá öllum farþegunum ! en nei heldur betur ekki! Ég lít til hliðar og sé bara tvo RASSA klessta í GLUGGANN á hinum bílinum!!! Ég var múnuð!!! Ég dó úr hlátri! :haha: Það sem fólk gerir er bara fyndið!:) Ég man ekki eftir neinu fleiru sem ég hef lent í í augnablikinu en endilega deilið með mér í kommentum hvað þið hafið lent í á ferðinni ykkar í bílnum :) Alltaf gaman að heyra sona sögur :)

Inga sem var múnuð!!!

» 11 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 19:14:01 / Inga

Jæja komið að því...

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu -

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvemur nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum

Jæja dúllurnar mínar svarið þessu í komment og deilið með mér :) Bara gaman af þessu!


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:29:19 / Inga

Röfl, frekja og meira röfl...

 Jæja ég var víst búin að lofa bloggi fyrir löngu löngu... og þar sem ég blogga sjaldan, eða meira mjög sjaldan 8) þá eru bloggin alltaf í lengri kantinum :) svo farið núna og náið ykkur í popp og kók, og ég skal gera hlé á skrifum mínum á meðan ;) en það er pínu mikið búið að gerast hjá mér síðustu vikuna...
Til að byrja með þá er komið páskafrí!!! :) vúhú! en það er samt bara vika eftir af því og fór síðasta vika í að vinna meira og minna, því miður! :( en auðvitað kann ég góða afþreyingu þess á milli, en það er auðvitað að fara út á lífið! Og já haldi þið ekki að ég hafi eignast nýja djamm vinkonu :) en það er engin önnur en hún Hrafnhildur sem flippar aldrei á dansgólfinu eins og Birna orðaði það! En ég afsannaði það því við skelltum okkur á papana um síðustu helgi, sem sagt laugardaginn fyrir pálmasunnudag:) Brjáluð stemming á Nasa og allt fullt:) við tókum einhvern flipp dans og skemmtum okkur KONUNGLEGA!!! Vá hvað það var gaman! Pínu af mjólkurdrykknum góða rann niður, en bara passlega mikið ;) u know me :D En þetta kvöld var bara mesta skemmtun! Svo kom auðvitað páskaHELGIN langa! Úff ég hef kannski tekið aðeins of vel á því... EN nýja djammvinkona mín var auðvitað að djamma á laugardag:) og ég með :haha: Við ákváðum í þetta skiptið að fara á Players og þar voru í Svörtum fötum að spila! Vá gaman! Eða næstum gaman allan tímann... Smá leiðindi í lokin sem ég vil ekki ræða :klikk: En fyrir utan það þá var þetta brjáluð skemmtun og gat ég ekki beðið eftir næstu skemmtun með Hrafnhildi sem var plönuð á föstudaginn langa þar sem Birna var ða halda upp á afmælið sitt;) Og viti menn, PAPAR OG BRIMKLÓ voru að spila á Players! Og það þurfti ekki að segja meira við mig og Hrafnhildi ! Birna og Ollý fóru líka með þangað :) en vá gaman! hitti meira að segja bróður minn! ;) Endalaus skemmtun! en um kl 3 fórum við þar sem við höfðum lofað fleirum að koma í bæinn líka!!! Svo Brimkló voru örugglega mjög góðir :D En jæja í bænum voru mjög margir! og hitti ég Svandísi og Kidda og allt fólkið :) Og auðvitað þurfti smá æsingur að komast í mannskapinn og enn og aftur ætla ég ekki að ræða það nánar... En ég VANN!!! hehe :haha:Og núna eru páskar...
Ég vaknaði á laugardag voða slöpp :( og í dag er ég eiginlega bara búin að vera ónýt upp í rúmi :( því miður! :( En það kannski ágæt að vera róleg sona stundum :) hehe
En jæja ég held að þetta sé komið nóg í bili...
Vona að poppið hafi verið nóg :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 14:41:29 / Inga

Kominn tími á blogg people:)

Það er samt ekki mikið sem hefur gengið á í mínu lífi undanfarið.. bara það sama og alltaf... nema núna ég komin á fullt í fótbolta, eða var það kannski alltaf ?;)  En núna er alvaran í boltanum að taka við, deildabikarinn byrjaður, töpuðum reyndar fyrsta leiknum en svona er þetta bara ... ég veit ekkert hvenær næsti leikur er en held að hann sé í apríl! Góður tími til ða koma sér í enn betra form!

En síðasta miðvikudag var grímuball skólans! og mætti fólk í ótrúlegustu dulvargervum! Mjög gaman að sjá alla, en ég var félagsskítur og ákvað að kíkja bara rétt og vera í engum búning enda var leikur daginn eftir og tímataka í 1000m sundi og ég ætlaði að gera mitt besta! :) Maður heyrði að þeir sem voru á grímuballinu hefðu skemmt sér alveg konunglega en ég sé samt ekki eftir því að hafa ekki verið jafn hress og hin :) en ég mætti þó, til að sjá fólkið í smá stund:)

Tímatakan í sundi daginn eftir var eiginlega bara dauði! 1000m sund! og maður varð að vera undir 24 mínútum til að ná inn á SKALANN! já SKALANN! Sem sagt 24 mín=1 í einkunn! ég átti ekki von á því að ná á skalann þar sem ég hef ekkert verið að synda aukalega, en nei mín mætti og náði bara ágætis tíma! 21:22 mínútur! Já og þessi tíma má gilda í vor í prófunum :) Nema ég bæti mig? ;)

En við skulum bara sleppa umfjöllum um leikinn í deildarbikarnum held ég... og fara beint í föstudaginn síðasta... Við á Laugarvatni (stelpurnar á 1.ári áttu frumkvæðið) ákváðum að skrá okkur me lið  á eitthvað fótboltamót á vegum Kennó í Rvk. við mættum með ágætislið en vorum mikið að spá í að skrá okkur úr keppni um morguninn þar sem margir voru að hætta við! :$ En nei við vildum nú ekki gera það og smöluðum í lið, reglur voru að skylda var ða hafa bæði kyn inn á í einu :) við mættum því með 2 stráka og 4 stelpur og dygga stuðningsmenn! (heil 4 stykki!)!! En síðan sáum við hin liðin, og hugsuðum jú, við ættum kannski möguleika NEMA það var eitt SANNKALLAÐ stráklið! sem vorum með eina stelpu upp á skraut ;) En hún spilaði alltaf því það varð að vera þannig :) Þeir mættu voða sigurvissir en nei vitiði hvað? Þeir gerðu jafntefli við okkur í keppninni og síðan mættum við þeim í úrslitaleiknum!! Já við komumst í úrslit:) Við ákváðum að láta það ekki á okkur fá að þeir væru eiginlega bara strákar sem ýttu okkur út um allan völl(þ.e. stelpunum) og var mér t.d. ýtt út í einhverja GEYMSLU!!! En sona er þetta, kom næstum ósködduð út frá þessu móti :) en úrslitaleikurinn endaði með jafntefli og við vorum spurð hvort við vildum vító eða framlengt! skil ekki af hverju spurja, því vító var eina sem kom til greina hjá okkur! það var sko stórskotahríð á markið okkar í úrslitaleiknum! En Dúfa stóð fyrir sínu! Og hún tók ÞRJÚ VÍTI FRÁ STRÁKUNUM! já stelpan fékk ekki að taka víti hjá þeim! tókum alls 6 víti og auðvitað enduðum við sem sigurvegara með örugg víti og besta markmann! Sem fékk einmitt verðlaun fyrir bestu tilþrifin! :) Unnum okkur inn máltíð fyrir 8 á Hressó um kvöldið og þar sem við vorum bara 6 og einn komst ekki í matinn þá buðum við DYGGUM stuðningsmönnum með :haha: Síðan komu nokkrir úr skólanum til að vera með okkur í fögnuðinum :) en síðan var ekkert stoppað eftir matinn, fór á þetta skemmtilega djamm og langt síðan ég hef skemmt mér sona :) Var sem sagt bjórkvöld hjá Kennó og hitti ég fullt af fólki úr gamla bekknum ásamt fólki sem ég hef ekki séð lengilengi :)

En dagurinn í gær var sona EKKI þynnkudagur, jebb ég vaknaði hress! og var að vinna aukavakt og núna tekur bara lærdómur við... :)

Hey já fyrir þau sem ekki vita, þá er ég búin að bóka flug til london í ágúst! LONDON BEIBÍ!! :)

En ég hef ákveðið að blogga ekki næst fyrr en ég fæ 12 komment eða fleiri :) Svo þetta er undir ykkur komið, nenni ekki ða blogga ef enginn les... :) En samt blogga ég fyrir mig en ekki ykkur ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 22:19:10 / Inga

Sigló, skíðaferð og allt :)

Kominn tími á blogg fólk? hmm kannski bara :)

En já eins og ég var búin að segja þá var ég í skíðaferð á Akureyri! Inga sem aldrei hefur farið á skíði KANN á skíði núna! Svo endilega platið mig með ykkur á skíði :) en hér kemur ferðasagan :)

Við stelpurnar í bekknum ákváðum að forskot á sæluna, ÁN strákanna, og fara á Sigló og keppa í öldungamóti í blaki ! Já fólk, við tókum þátt í okkar fyrsta blakmóti margar og vissum að þetta myndi vera erfitt :D En með viljann að vopni þá komumst við í gegnum þetta slysalaust! Unnum ekki marga leiki liðið mitt en hitt liðið fór á kostum og vann aðeins fleiri ;) En síðan um kvöldið þá var auðvitað kíkt á næturlífið á Siglufirði! Farið að borða með öðru blakfólki og verðlaunaafhending! Fór orð af okkur stelpunum hvað við vorum rosalega lágværar ;) Var þetta hin mesta skemmtun þó næturlífið á Siglufirði sé eitt það dauðasta sem ég hef kynnst! Við vorum á sona öldungaballi fyrst með öllum hinum en okkur leist nú ekki mikið á það og stungum af á Allann þar sem við héldum að væri stemming og fólk! En nei viti menn! Þar var ekkert næturlíf! Svo við skelltum okkur þangað in, hóuðum í hinar stelpurnar og þá var komið partý og við fengum að ráða tónlist ! Lengi lifi Páll Óskar og Silvía Nótt! En dagurinn eftir, var ekki minn besti dagur... úff fólk sem sá mig veit hvað ég meina! ég var verri en ég veit ekki hvað! kom ekki einni bollu oní mig :( en síðan lá leiðin á Akureyri í skíðaferð!

Ég var búin að kvíða pínu fyrir þessu þar sem ég hafði aldrei farið á skíði áður... En viti menn! Við byrjendur vorum bara með kennara sem kenndi okkur allan grunn! (NB. Ég var sú eina sem hafði ALDREI farið á skíði) Ég datt ekki eins oft og ég átti von á, og ég fór í stólalyftuna á fyrsta degi ;) Mikill sigur fyrir mig að komast niður brekkurnar heil! :haha: En allir dagarnir í vikunni voru svipaðir, skautar á morgnana og skíði eftir hádegi... En síðan komu kennarar frá BNA og voru að kynna skíðaíþróttir fatlaðra! Mjög skemmtilegt það allt og fengum við að prófa öll tækin sem þeir voru með! :) Nú hef ég komist að því að ALLIR geta farið á skíði sama hvað er að :) Því mæli ég eindregið með því að þú farir á skíði :) En kvöldin voru mismunandi... ég var yfirleitt uppgefin eftir daginn og fór snemma að sofa eftir ða hafa hitt mannskapinn í pínu stund.. og svo á sprengidag þá var ég svo kurteis ða ég bauð mér sjálf í mat til frænku minnar ;) Meina jú, þú þarf að uppfylla ættingjaskylduna, það er ða mata mig ;) En síðan á miðvikudag var farið á Greifann að borða og smá skrall á mannskapnum og svo á fimmtudag var mjólkurkynning og skemmtun um kvöldið ;) Var þetta mjög skemmtilegt kvöld og á föstudaginn þá vaknaði mín hress! Já fólk ÉG vaknaði hress eftir djamm og fór á skíði! Eftir þennan morgun var svo farið heim til Reykjavíkur :)

En kraftaverk gerðist í þessari ferð, ég fór ekki á netið í viku og var ekki með bílinn minn heldur! :haha: Ég lifði þetta af!!!

Síðasta helgi var þreytt helgi, nýbúin í skíðaferð og að vinna laugardag og sunnudag! En það samt stoppaði mig ekki í því að kíkja út á lífið á laugardag!!! 8| Skemmti mér alveg konunglega þetta kvöld, fór í partý til Helenu, þar sem Jóa og Birna voru, ég lenti í sona extreme makeover eins og Helena orðaði það ;) mjög skemmtilegt! Síðan fórum við í bæinn þar sem ég einhvern veginn stakk þær af 8| Eða það var samt ekkert meiningin! En svona er ég á djamminu, tolli sjaldan lengi með fólki... :s En fann síðan hana ollý mína og skemmti mér með henni þangað til ég fór heim :) hehe

En jæja komið nóg, þið megið vakna núna :) hehe en já eitt enn, árshátíð skólans á morgun! Jibbý :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4